Fréttir
KÁTIR DAGAR OG FLÓAFÁR FRAMUNDAN
17.03.2026
UPPBROT er nauðsynlegt í faglegu skólastarfi. Þá leggja nemendur og kennarar niður hefðbundin störf og beina athygli sinni og aðferðum í aðrar áttir. KÁTIR DAGAR eru liður í því sem hefjast miðvikudaginn 18. mars og samanstanda af dagskrá sem unnin er að frumkvæði nemenda og með stuðningi kennara.
Lesa meira
Kvöldskóli í pípulögnum og rafvirkjun
12.03.2026
Á haustönn 2026 verður boðið upp á nám í pípulögnum og rafvirkjun í FSu sem kennt verður á kvöldtíma ef næg þátttaka fæst.
Námið er aðallega hugsað fyrir þá einstaklinga sem hafa ekki komist að í dagskóla fram til þessa eða hafa áhuga en hafa ekki getað verið í námi á dagtíma.
Lesa meira
ÁFANGAMESSAN OG VALDAGUR
10.03.2026
Áfangamessa er fastur liður í starfsemi FSu. Þá setja kennarar skólans upp skreytta bása eða kynningarborð á sal skólans og nemendur kynna sér fjölbreytt námsframboð. Á þessari önn varð sá dagur MIÐVIKUDAGURINN 4. MARS. Valdagur fylgir svo í kjölfarið og verður 11. MARS næstkomandi en þá velja nemendur áfanga fyrir komandi haustönn.
Lesa meira
KÓRFERÐALAG TIL ÍTALÍU
02.03.2026
Dagana 24. til 28. febrúar síðastliðinn fór Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands í söngferð til Ítalíu. Flogið var til Mílanó og þaðan ekið til borgarinnar Ölbu. Tilgangurinn var að hitta ítalska jafnaldra sem voru að setja upp ameríska söngleikinn Chorus Line.
Lesa meira
Hinsegin vika í FSu
02.03.2026
Vikuna 2. - 6. mars er hinsegin vika í FSu. Fögnum fjölbreytileikanum og klæðumst öllum regnbogans litum.
Lesa meira
LÍKAMINN Í LAUGINNI
24.02.2026
Myndlistarnemar við Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa sett upp sýningu í Sundhöll Selfoss sem ber yfirskriftina Möndlað með mannslíkamann en þar er LÍKAMINN helsta viðfangsefnið. Myndlistaráfanginn er á 3. þrepi og aðeins kenndur fjórðu hverja önn. Hann kallast Maður og efni og er einn af framhaldsáföngum myndlistarkennslunnar.
Lesa meira
BROTTHVARF OG GERVIGREIND
14.02.2026
FSu tekur núna þátt í alþjóðlegu þróunarverkefni sem snýr að brotthvarfi nemenda úr námi og hagnýtingu gervigreindar til að draga úr því brotthvarfi. Háskóli Íslands leiðir þessa vinnu og óskaði eftir aðkomu FSu. Heiðurskonan Halla Dröfn Jónsdóttir skólafélagsráðgjafi FSu var fulltrúi skólans á vinnufundi í Brussel í liðinni viku. Verkefnið kallast stAI en fyrri hluti hugtaksins vísar til nemenda (student) en seinni hlutinn til gervigreindar (AI).
Lesa meira
LÖGGUR Í LÖNS
30.01.2026
Forvarnarverkefnið Öruggara Suðurland varð til á stofnfundi í Þorlákshöfn 18. apríl árið 2024. Í því er lögð áhersla á að vinna að forvörnum og afbrotavörnum á breiðum samfélagsgrunni þar sem opinberar stofnanir og félagasamtök taka höndum saman. Í þeim efnum leikur fyrirbærið samfélagslöggan jákvætt og uppbyggilegt hlutverk og sinnir forvörnum í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og í félagsmiðstöðvum.
Lesa meira
Endurmenntun fyrir fagfólk í garðyrkju
28.01.2026
Nú á vordögum býður Endurmenntun græna geirans upp á nokkur námskeið ætluð fyrir fagmenntaða garðyrkjufræðinga. Athyglinni verður beint að klippingu, umhirðu og áhættumati trjágróðurs. Einnig verður námskeið um forvarnir gegn gróðureldum.
Lesa meira







