Grunnþættir menntunar og skólabragur
Á fyrstu tveim önnunum taka allir nemendur áfanga í félagsfræði og umhverfisfræði. Þar er lögð áhersla á heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun og grunnþætti menntunar sem skilgreindir eru í aðalnámskrá framhaldsskóla og öllum skólum ber að leggja áherslu á.
Áfangarnir tveir eru:
FÉLA1SA05, ERGÓ - samfélagið og umheimurinn.
UMHV1SU05, ERGÓ - umhverfið og sjálfbærni.
Skólabragur (BRAG) er námsgrein í skólanum. Allir nemendur taka tvo einnar eininga áfanga á fyrstu tveimur önnunum. Markmiðið er að efla skólabraginn með því að kynna fyrir nemendum ýmsa mikilvæga þætti í starfsemi skólans og þeirra þátt í þeim. Einnig að kynna skólakerfið og námsframboð skólans þannig að nemendur hafi þekkingu til að velja námsbraut og áfanga sem henta þeirra framtíðaráformum í námi og störfum.
Áfangarnir tveir eru: BRAG1SA01 og BRAG1SB01.