Stefna um notkun gervigreindar í námi og námsmati

Markmið

Stefna setji viðmið um ábyrga, gagnsæja og lögmæta notkun gervigreindartóla (AI) í námi og námsmati, í samræmi við leiðbeiningar og siðferðisleg viðmið Háskóla Íslands (HÍ) og Háskólans í Reykjavík (HR).

Endurskoðun á reglum verði tímasett þ.e. yfirfarnar á 2ja ára fresti.

Skilgreiningar

Gervigreind (AI): Verkfæri/kerfi sem herma mannlega greind (t.d. ChatGPT, Copilot, Gemini, o.fl.).

Heimiluð notkun: Notkun sem er fyrir fram samþykkt af kennara og í samræmi við þessar reglur.

Óheimil notkun: Notkun í andstöðu við fyrirmæli kennara, eða án heimildar, er talin

svindl (akademískt misferli).

Heimiluð notkun

Námshjálp, drög og speglun, tæknileg aðstoð að því marki sem kennari heimilar.

Óheimil notkun

Að láta gervigreind leysa verkefni eða hluta þess og skila sem eigin verki án heimildar. Innsláttur persónuupplýsinga í opnum gervigreindartólum.

Meginviðmið

  1. Tilkynningarskylda og framsetning í verkefnum (kennarar)

Ef gervigreind er notuð skulu kennarar setja skýran notkunarkafla í verkefnalýsingu: lýsingu á tilgangi, tól/útgáfa, gagnrýnin yfirferð, heimildir.

  2. Heimildaskráning og tilvísanir (nemendur)

Vísa skal í frumheimildir. Gervigreindartexti er ekki frumheimild. Almenn tilvísun í notkun gervigreindar má setja í athugasemd/eða sem skýringu og heimildaskrá.

  3. Persónuvernd og öryggi gagna (skólasamfélagið allt, stjórnendur, nemendur og kennarar)

Óheimilt: Innsetning nafna, kennitalna, einkunna eða viðkvæmra gagna í gervigreindartól. Annað er brot á persónuverndarlögum.

  4. Námsmat, sannprófun og viðbrögð við grun um misferli (skóli/kennarar)

Kennari getur óskað eftir munnlegri vörn eða viðbótarprófi. Óheimil notkun telst akademískt misferli/svindl og varðar skólareglur.

Ábyrgð og innleiðing

Nemendur: fylgja reglum.

Kennarar: skilgreina leyfilega notkun og uppfræða.

Deildir: tryggja samræmi og fræðslu.

Stjórnendur: styðja við verkferla.

Endurskoðun og þróun

Reglurnar eru lifandi skjal og skulu endurskoðaðar reglulega ef breytingar verða á tækni eða regluverki.

Tilvísanir

HÍ – Leiðbeiningar fyrir notkun gervigreindar. (https://gervigreind.hi.is/)

HR – Leiðbeinandi viðmið um notkun gervigreindar í námi og kennslu. (https://www.ru.is/hr/starfsemi/stefnur-og-samthykktir/leidbeinandi-vidmid-um-notkun-gervigreindar-i-nami-og-kennslu-fyrir-kennara-og-nemendur-hr) 

Tengdar reglur um viðurlög við misnotkun á gervigreind sem þegar liggja fyrir: Reglur um svindl í verkefnum og prófum

Síðast uppfært 10. febrúar 2026