Akademísk heilindi - námssiðferði

Akademísk heilindi vísa til heiðarleika og ábyrgðar í námi. Þau fela í sér að nemendur vinni verkefni og próf sjálfir, sýni virðingu fyrir vinnu annarra og fylgi reglum skólans um góð og vönduð vinnubrögð. Akademísk heilindi eru grundvöllur trausts, jafnræðis og fagmennsku í skólastarfi.

Akademísk heilindi fela meðal annars í sér:

  • Að skila eigin vinnu
    Nemendur skulu skila verkefnum sem þeir hafa sjálfir unnið, nema annað sé skýrt tekið fram (t.d. í hópverkefnum).
  • Rétta og skýra heimildanotkun
    Allar heimildir sem notaðar eru í verkefnum, ritgerðum eða kynningum skulu tilgreindar á viðurkenndan hátt. Þetta á við um texta, hugmyndir, myndir og stafrænt efni. Heimildir skulu skráðar samkvæmt APA kerfinu. (sjá viðmið um heimildaskráningu)
  • Að forðast ritstuld og annað misferli
    Ritstuldur, afritun, svindl í prófum eða að láta aðra vinna verkefni fyrir sig telst brot á akademískum heilindum, óháð því hvort það er gert af ásetningi eða vanþekkingu. (sjá reglur skólans um svindl í prófum og verkefnum)

Samantekt

Með því að fylgja akademískum heilindum sýna nemendur ábyrgð gagnvart eigin námi, skólasamfélaginu og framtíðarnámi eða starfi.

Byggt á reglum frá Háskóla Íslands, Menntaskólans við Hamrahlíð og Menntaskólanum að Laugarvatni

Síðast uppfært 10. febrúar 2026