Strætó

 

Nemakort Strætó á Landsbyggðinni

Nú stendur nemendum til boða að kaupa nemakort með landsbyggðarvögnum Strætó á Suðurlandi, Suðurnesjum, Vesturland og Norður- og Norðausturlandi. Kortin eru fyrir nemendur sem sækja nám við framhalds- eða háskóla á landsbyggðinni, eða eru með búsetu á landsbyggðinni og sækja nám við sambærilega skóla á höfuðborgarsvæðinu.

Kortin gilda í 6 mánuði frá því þau eru keypt

Upplýsingar um sölu nemakorta á landsbyggðinni er inni á heimasíðu Strætó undir liðnum Verslun/Nemakort á Landsbyggðinni. Þar eru gefin upp verð á nemakortunum og hvernig staðið er að pöntun og greiðslu á kortunum. https://www.straeto.is/is/verslun/nemakort-a-landsbyggdinni 

Meðan notandi hefur ekki fengið kort afhent í pósti getur sá hinn sami ferðast með landsbyggðarstrætó með því að sýna kvittun úr heimabanka og persónuskilríki með mynd.

Notkun nemakortanna er óháð aksturstefnu notandans. Hægt er að ferðast frá A til B og B til A. Notendur kortanna eru ekki bundnir við að nota kortið í eina tiltekna akstursstefnu.

Einungis er hægt að nota nemakortin innan þess landsfjórðungs sem það er gefið út fyrir. Sem dæmi, kort gefið út fyrir Vesturland er ekki nothæft í landsbyggðarvögnum á Suðurlandi.

Nemakort Strætó á landsbyggðinni gilda ekki í vögnum á höfuðborgarsvæðinu. Þegar ferðast er yfir á höfuðborgarsvæðið er hægt er að fá skiptimiða í landsbyggðarvagni og nota miðan í vögnum á höfuðborgarsvæðinu.

Gerð nemakorta í landsbyggðarvögnum Strætó: Kort Gildir innan svæðis.

Suðurland: Milli höfuðborgarsvæðis, Þorlákshafnar, Reykholts og Hafnar í Hornafirði. 89.900 kr. 

 

Síðast uppfært 25. ágúst 2022