Fréttir

Vetrarleikar FSu 2021

Vetrarleikar FSu voru haldnir á félagssvæði Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi fimmtudaginn 18. febrúar í frábæru veðri. Sem fyrr kom það í hlut nemenda á fyrsta ári á hestabraut að sjá um mótið og bera ábyrgð á öllum undirbúningi og framkvæmd þess.
Lesa meira

Undirbúningur útskriftar

Fyrsti fundur fyrir verðandi útskriftarnemendur á starfsbraut var haldinn 10. febrúar á Innu. Guðrún Jóna Ingvarsdóttir, Jón Ingi Guðfinnsson og Kristófer Agnarsson, sátu spennt við tölvuna og tóku við upplýsingum frá Sigursveini Sigurðssyni, aðstoðarskólameistara varðandi fyrirkomulag útskriftar, enda um spennandi tímamót að ræða.
Lesa meira

Brúsasaga

FSu hefur undanfarin ár unnið að því að huga að umhverfismálum í starfi skólans og tekur þátt í verkefninu Græn skref í ríkisrekstri og er Grænfánaskóli. Nýverið ákvað skólinn í samráði við umhverfisnefnd að gefa öllu starfsfólki vatnsbrúsa. Hugsunin er að fólk sé með brúsana í vinnunni og noti. Þetta ýtir undir vatnsdrykkju og minnkar uppvask og vinnu.
Lesa meira

Listaverk í hársnyrtiiðn

Fjölbrautaskóli Suðurlands býður upp á nám í hársnyrtiiðn. Námið er sex annir og geta nemendur tekið fjórar af þeim hér í skólanum. Námið er skapandi og skemmtilegt og atvinnumöguleikar að því loknu mjög góðir.
Lesa meira

Fréttir frá körfuboltaakademíu FSu

Selfoss Karfa kynnir með stolti verkefni sem unnið hefur verið að undanfarna 12 mánuði með Real Betis á Spáni. Um er að ræða samning um náið samstarf þessara tveggja félaga við uppbyggingu ungra og efnilegra leikmanna til að undirbúa þá fyrir hæsta getustig körfuboltans. Félögin munu vinna að sameiginlegri, faglegri sýn er varðar liðsuppbyggingu, umgjörð, þróun leikmanna frá öllum hliðum og hinum æðri markmiðum körfuboltans.
Lesa meira

Fjölbreytt verkefni í húsasmíði í kvöldskóla FSu

Nemendur í byrjunaráfanga í byggingartækni í kvöldskóla FSu þurfa að leysa ýmis verkefni.
Lesa meira

Nemendafélagsfréttir

Síðastliðin önn var ekki eins og annir eru flestar. Heimsfaraldur og samkomubann settu strik í reikninginn varðandi skipulag viðburða hjá Nemendafélagi FSu. Þó tókst að gera það besta úr ástandinu.
Lesa meira

Glæsilegt kennslueldhús komið í notkun

Nýtt faglegt kennslueldhús var opnað í FSu í haust eftir miklar endurbætur. Kennarar og nemendur á Grunnnámsbraut matvæla og ferðagreina ásamt nemendum í valáföngum í bakstri og matreiðslu eru mjög ánægð með nýja kennslueldhúsið sem er mjög vel tækjum búið og öll aðstaða til fyrirmyndar eldhúsið er líka mjög bjart og fallegt.
Lesa meira