Fréttir

Sungið og spilað í gryfju

Í fundargati á miðvikudögum gefst oft tækifæri til að bjóða upp á uppbrot fyrir nemendur. Nýlega kíkti fyrrverandi nemandi í heimsókn með gítarinn sinn og tók nokkur lög í Gryfjunni í miðrými skólans.
Lesa meira

Bætt aðstaða til kennslu í vélvirkjun

Vélvirkjar tóku nýlega í notkun nýja kennsluaðstöðu fyrir glussatækni, loftstýritækni og kælitækni. Þessi aðstaða og ný tæki hafa gjörbreytt forsendum til að læra þessi fög.
Lesa meira

Örsaga FSu 2019

Í tilefni af Degi íslenskrar tungu var efnt til örsögukeppni í FSu. Margar skemmtilegar sögur bárust en fimm þeirra þóttu bera af. Þær voru ríkar af myndmáli, sköpuðu ákveðna stemmingu og komu hugsunum lesanda af stað í allar áttir.
Lesa meira

Námsferð til Ítalíu

Í sumar var farin erasmus+ ferð á vegum FSu til Ítalíu. 4 nemendur og 2 kennarar fóru í tengslum við verkefnið Inclusion by sport and culture. Farið var á fornleifasvæði, fræðst um sögu Ítalíu í nálægð við Napolí og skútusiglingar prófaðar.
Lesa meira

Góð samvinna

Nýlega smíðuðu nemendur á húsasmiðabraut áhöld fyrir hestabraut FSu sem notuð verða til kennslu í hindrunarstökki. Gaman er að sjá hvernig þekking á mismunandi brautum nýtist á milli faggreina innan skólans.
Lesa meira

Fallegt handverk

Fjölbreytt verkefni eru unnin af nemendum í textíl og fatahönnun. Í áfanganum HÖTE3HA vinna nemendur með tauþrykk, búta- og útsaum. Nemendur kynnast helstu aðferðum í þessu handverki og gera ýmis verkefni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Lesa meira

Keppni í þrautalausnum

BEBRAS áskorun 2019 stendur yfir vikuna 11. -15. nóvember. Bebras áskorunin er þrautarlausnakeppni tekin í tölvu og reynir á rökhugsun og tölvufærni.
Lesa meira

Stuttverkahátíð leiklistar- og íslenskunemenda

Nemendur í leiklist og nemendur í íslenskuáfanga í ritun og tjáningu héldu nýverið uppskeru- og leiklistarhátíð þar sem sýnd voru 9 stuttverk.
Lesa meira