Fréttir

Eldmóður og markmiðssetning

Starfsfólk FSu hugaði að eldmóði, markmiðssetningu, forgangsröðun í lífinu og jákvæðu viðmóti á stuttu námskeiði sem haldið var í vikunni. Valdimar Svavarsson, ráðgjafi og fyrirlesari sá um námskeiðið sem haldið var á vegum fagráðs FSu.
Lesa meira

Lýðræði og seigla

FSu er þátttakandi í evrópsku samstarfsverkefni í gegnum áætlun sem nefnist Erasmus +. Í vikunni sem leið voru 24 kennarar í heimsókn hjá okkur í tengslum við verkefnið, Lýðræði og seigla (Democratic European schools for success – DESS). Kennararnir komu frá samstarfslöndunum fimm: Rúmeníu, Búlgaríu, Þýskalandi, Spáni og Portúgal.
Lesa meira

Harðgerir göngugarpar

Nokkrir grjótharðir nemendur í fjallgönguáfanga FSu ásamt Sverri íþróttakennara, létu ekki rok og rigningu stoppa sig frá því að ganga um Hengilsvæðið síðastliðinn laugardag.
Lesa meira

Enskukennarar rannsakaðir

Í liðinni viku sóttu nokkrir enskukennarar skólans vinnustofu á vegum Félags Enskukennara sem haldin var í Reykjavík. Þar fjallaði Averil Coxhead um orðaforðakennslu og rannsóknir sínar á notkun orðaforða.
Lesa meira

Gengið á fimm fjöll

Þegar hefðbundinni kennslu er lokið á föstudögum, fara flestir nemendur heim í helgarfrí. Það á þó ekki við um nemendur í fimm fjallaáfanganum. Þeir nemendur reima á sig gönguskó og halda til fjalla.
Lesa meira

Veggjalist og hestamennska hittust í Smiðjunni

Svo skemmtilega vildi til í vikunni að kennarar á bæði myndlista- og hestabraut ákvæðu að notfæra sér aðstöðuna í Smiðjunni í Hamri við kennslu á sama tíma. Nemendur á hestabraut voru að kryfja fætur hrossa sem er liður í að bæta þekkingu þeirra á járningum á meðan myndlistanemar voru að undirbúa fleti fyrir veggjalist.
Lesa meira

Hann á afmæli í dag - hann á afmæli í dag!

FSu á afmæli í dag, 13. september. Skólinn okkar er 36 ára og ber aldurinn vel. Til hamingju öll.
Lesa meira

Verkefni í gerð stop-motion myndbanda

Nemendur í áfanganum FILM1SX02 vinna fjölbreytt verkefni í kvikmyndagerð. Áfanginn snýst um að kynna fyrir nemendum á starfsbraut möguleika til hljóð og myndaupptöku sem búa í farsímunum þeirra og einnig að prófa ýmis ókeypis forrit sem hægt er að nota til kvikmyndagerðar.
Lesa meira

Framför í fjallgöngum

Á þessari önn eru kenndir tveir fjallgönguáfangar. Einingarnar sem fást fyrir þessa áfanga metast sem íþróttaeiningar. Annar hópurinn fer í nokkrar fjallgöngur í nágrenni skólanns, þrjár styttri göngur á föstudögum eftir skóla og tvær lengri laugardagsgöngur. Myndir úr þeim ferðum koma síðar. Hinn hópurinn gekk yfir Fimmvörðuháls á dögunum
Lesa meira

Hljóðbókasafn

Nemendur með greiningu um námserfiðleika eiga rétt á aðgangi að hljóðbókum í námi sínu. Hér á eftir eru upplýsingar um hvernig ferlið gengur fyrir sig.
Lesa meira