Gengið á fimm fjöll

Á Ingólfsfjalli.
Á Ingólfsfjalli.

Þegar hefðbundinni kennslu er lokið á föstudögum, fara flestir nemendur heim í helgarfrí.  Það á þó ekki við um nemendur í fimm fjallaáfanganum.  Þeir nemendur reima á sig gönguskó og halda til fjalla.  Það er nefnilega þannig að undanfarna þrjá föstudaga hafa þessir nemendur gengi á Mosfell í Grímsnesi, Reykjafjall við Hveragerði og sjaldfarna leið á Ingólfsfjall.  Næstu tvo laugardaga heldur göngugleðin svo áfram en þá verður farið í heldur lengri göngur, fyrst á topp Hengils, Vörðu Skeggja og laugardaginn þar á eftir er ætlunin að ganga upp Reykjadal og áfram að Kattartjörnum.  Í þeirri göngu nær hópurinn að ganga um þrjú sveitarfélög.  Göngubyrjun er í Hveragerði, Reykjadalurinn er í Ölfusi en Kattartjarnir í Grafningi. Kennari er Sverrir Ingibjartsson.