Fréttir
Kennarar heiðraðir
			
					25.05.2019			
	
		Þrír kennarar, Helgi Þorvaldsson, Ólafur Bjarnason og Sigurður Grímsson, sem hafa starfað við FSu í samtals 96 ár létu formlega af störfum við lok vorannar og var þeim færður þakklætisvottur af þessu tilefni á brautskráningu vorannar.
Lesa meira
		Svanhildur dúx FSu á vorönn 2019
			
					25.05.2019			
	
		Svanhildur Guðbrandsdóttir er dúx FSu á vorönn 2019.
105 nemendur brautskráðust frá skólanum laugardaginn 25. maí. Sex nemendur luku námi á húsasmíðabraut, þar af einn sem einnig lauk námi á stúdentsbraut. 
Lesa meira
		Það er sitthvað rusl og úrgangur
			
					14.05.2019			
	
		Hönnunarkeppni nemenda í grafískri miðlun.
Nemendur í grafískri miðlun fengu það verkefni á vordögum að hanna og setja upp tillögur að merkingum á ruslafötur skólans þannig að skilaboðin séu hrein og klár og henti markhópnum þ.e. fólki á framhaldsskólaaldri. Um samkeppni var að ræða.
Lesa meira
		Erasmus+ Refugees verkefnalok í Prag
			
					13.05.2019			
	
		Nemendur og kennarar í FSu héldu til Prag í páskafríinu í lokaferð vegna erasmus+ verkefnisins Refugees sem búið er að standa yfir í þrjú ár. Samstarfið var milli skóla frá Grikklandi, Ítalíu, Íslandi, Lettlandi og Tékklandi.
Lesa meira
		Taphrinu Tapsárra lokið.
			
					13.05.2019			
	
		Þann  11. maí var fyrri einvígisleikur ársins milli Hyskis Höskuldar og Tapsárra Flóamanna (bridgesveitar starfsmanna FSu)  spilaður að Merkurlaut á Skeiðum.  Leikurinn endaði  94 – 35 í impum fyrir Tapsára Flóamenn, sem af fróðum mönnum er víst erfitt að flokka sem jafntefli. Tapsárir standa því betur að vígi fyrir seinni leik ársins sem fer oftast fram á haustdögum
Lesa meira
		Appelsínugulir og glaðir dimmitantar
			
					10.05.2019			
	
		Skólinn fylltist af dansandi appelsínugulum fyrirbærum í dag, föstudag. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. 
Lesa meira
		Útskriftarverkefni sjúkraliðanema kynnt
			
					09.05.2019			
	
		Miðvikudaginn 1. maí, var haldin málstofa sjúkraliðabrautar FSu í Iðu þar sem átta nemendur kynntu efni útskriftarverkefna sinna.
Lesa meira
		Vænleg fyrirtæki í viðskiptaensku
			
					08.05.2019			
	
		Nemendur í Viðskiptaensku (ENSK3VE05) héldu nýverið opna kynningu þar sem þau kynntu fyrirtæki sem þau hafa þróað og unnið með á önninni.
Lesa meira
		 
				







 
 
 
 
 
 
 
