Kennarar heiðraðir

Helgi Þorvaldsson, Ólafur Bjarnason og Sigurðu Grímsson hafa starfað samtals við skólann í 96 ár.
Helgi Þorvaldsson, Ólafur Bjarnason og Sigurðu Grímsson hafa starfað samtals við skólann í 96 ár.

Þrír kennarar, Helgi Þorvaldsson, Ólafur Bjarnason og Sigurður Grímsson, sem hafa starfað við FSu í samtals 96 ár létu formlega af störfum við lok vorannar og var þeim færður þakklætisvottur af þessu tilefni á brautskráningu vorannar.

Helgi hefur kennt við skólann allt frá stofnun hans, árið 1981. Hann hefur kennt ensku, bæði á Selfossi, og einnig á Litla Hrauni.

Ólafur, hóf störf við skólann árið 1987, og hefur kennt stærðfræði auk þess að aðstoða nemendafélag skólans við bókhald þess í áraraðir.

Sigurður, sem hefur kennt við FSu frá árinu 1993, hefur kennt málmiðngreinar, bæði á Selfossi og á Litla Hrauni.

Er þeim þakkað fyrir einstaklega vel unnin störf í gegnum árin, framlag þeirra til menntunar sunnlenskra ungmenna er afar dýrmætt.