Appelsínugulir og glaðir dimmitantar

Dimmitantar dansa.
Dimmitantar dansa.

Skólinn fylltist af dansandi appelsínugulum fyrirbærum í dag, föstudag. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. Fyrirbærin eru byggð á  teiknimyndapersónunni Lorax og er úr samnefndri bíómynd gerða eftir sögu Dr. Seuss.

Appelsínugulu gleðigjafarnir stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Nú hefst próflestur, en um 108 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann af lengri og styttri brautum. Brautskráning vorannar fer fram laugardaginn 25. maí og hefst kl. 14.

Fleiri myndir af dimmitöntum má finna á fésbókarsíðu skólans