KRAFTMIKIL ÁFANGAMESSA
Áfangamessa er orðinn fastur liður í starfsemi FSu. Þá setja kennarar skólans kynningarborð á sal skólans og nemendur hnusa af fjölbreyttu námsframboði. Á þessari önn varð sá dagur miðvikudaginn 7. október. Valdagur fylgir svo í kjölfarið viku síðar þegar nemendur velja áfanga fyrir komandi vorönn.
Iðn- og starfsnámsbrautir eru sex við skólann. Í hársnyrtiiðn, matvæla- og ferðagreinum, húsasmíði, rafvirkjun, vélvirkjun og á sjúkraliðabraut. Stúdentsbrautir til bóknáms eru sex. Í alþjóðasamskiptum, félagsgreinum, náttúrufræðigreinum, íþróttum, viðskipta- og hagfræðigreinum og á svokallaðri opinni línu. Stúdentsbrautir til starfsnáms eru þrjár. Í búfræði, hestamennsku og listgreinum. Þá er rekin sérnámsbraut fyrir nemendur sem þurfa stuðning í námi og síðast en ekki síst er hægt að stunda garðyrkjunámið á sex brautum.
jöz







