SKÓLASTARF Í 45 ÁR

Fjölbrautaskóli Suðurlands á afmæli 13. september ár hvert. Og í dag eru því 45 ár frá stofnun hans árið 1981. Þá var öðruvísi umhorfs á skólalóðinni við Tryggvagötu og Engjaveg og engar varanlegar skólabyggingar til staðar. Allt starf var frumkvöðlastarf og kennsla fór fram í húsnæði víða um Selfoss. Í tilefni af afmælinu héldu núverandi og fyrrverandi starfsmenn ofurlítið hóf á sal skólans – Gaulverjabæ – eftir kennslu föstudaginn 11. september. Þar voru flutt stutt ávörp og saga skólans rifjuð upp í gegnum myndasýningu og frásögn. Kaffi var framborið og bakkelsi af bestu gerð.

Heimir Pálsson fyrsti skólameistari FSu ávarpaði meðal annarra samkomuna og kom skýrt fram í máli hans hversu mikla samheldni meðal Sunnlendinga – framsýni og undirbúning - hefði þurft á sínum tíma til að skólastarf í FSu yrði að veruleika. Þá var í reiknilíkani ráðuneytisins í mesta lagi gert ráð fyrir 400 nemenda skóla sem nú er orðinn að 1100 nemenda skóla sem gegnir lykilhlutverki í gjörbreyttu sunnlensku samfélagi.

Eins og áður hefur verið sagt á þessum vettvangi geta myndir sagt meira en mörg orð og birtast á fésbókarsíðu skólans nokkrar þeirra sem teknar voru í starfsmanna hófinu 11. september síðastliðinn.

jöz.