Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta HÍ

Hrafnhildur Ýr Steinarsdóttir ásamt Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands.
Ljósmyndina …
Hrafnhildur Ýr Steinarsdóttir ásamt Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektor Háskóla Íslands.
Ljósmyndina tók Kristinn Ingvarsson.

Tuttugu og níu nemendur úr 14 framhaldsskólum, sem stóðu sig framúrskarandi vel í námi til stúdentsprófs og hófu grunnnám í Háskóla Íslands nú í haust, tóku við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta HÍ við athöfn á Háskólatorgi í gær. Styrkþegar úr sjóðnum frá upphafi eru nú yfir 500 talsins.

Við erum virkilega stolt af Hrafnhildi Ýr Steinsdóttur, nemanda úr FSu og dúx skólans á vorönn 2025, sem hlaut styrk.

Sjá frétt.