Val fyrir vorönn 2027

Opnað hefur verið fyrir val á áföngum fyrir vorönn 2027.

Allir nemendur velja í INNU, nýnemar fá sérstaka aðstoð í BRAGA-tímum.

Hér má finna hvaða áfangar eru í boði og leiðbeiningar varðandi val. Einnig eru upplýsingar og kennslumyndbönd á INNU, undir „Aðstoð“.

Þau sem þurfa aðstoð leita til umsjónarkennara, annað hvort með tölvupósti eða viðtali á valdaginn. Í flóknari tilvikum er hægt að mæta í opna valaðstoð hjá námsráðgjöfum eða bóka tíma hér.

Valdagurinn er 14. október.

Þá er lokadagur valsins. Umsjónar- og BRAGA-kennarar verða til aðstoðar kl. 14:05 – 15:00. Upplýsingar um staðsetningu þeirra (stofur) verða hengdar upp á töflu í miðrými þann dag. 

 

Allir nemendur verða að velja áfanga og staðfesta val dagana 8.-14. október því annars er skólavist á vorönn 2027 ekki tryggð.

Val er umsókn um skólavist á næstu önn!