FJÖLBREYTT OG FORVITNILEG MYNDLISTARSÝNING
Myndlistarnemar við Fjölbrautaskóla Suðurlands hafa sett upp fjölbreytta sýningu í Sundhöll Selfoss. Sú ber yfirskriftina Með blýant að vopni. Í áfanganum, sem er framhaldsáfangi í teikningu, er eingöngu unnið með blýant eins og nafn sýningarinnar ber með sér. Þar hljóta nemendur þjálfun í alls konar fríhendis blýantsteikningum, skyggingum náttúru, hluta, manna og dýra og reyna að ná raunsæjum og súrrealískum áhrifum. Enn fremur er áhersla á áferðir ýmis konar og meðvitaða myndbyggingu.
Það fylgir öllum framhaldsáföngum myndlistar í FSu að halda sýningu í opinberu rými, enda ákveðið nám sem felst í sýningarundirbúningi. Að auki þurfa nemendur að skila greinargerð með hverju fullloknu verki þar sem þeir íhuga og rökstyðja í máli og myndum sína nálgun, myndbyggingu og innihald svo eitthvað sé nefnt. Kennari áfangans var Ágústa Ragnarsdóttir Anna Kristín Valdimarsdóttir samkennari hennar fylgir sýningunni úr hlaði.
Að sögn Önnu er um að ræða „verk úr fjórum af fimm verkhlutum áfangans sem eru til sýnis. Fyrsti verkhluti kallast Náttúran nær og fjær, í öðrum verkhluta er fókusað á Hluti og dýr. Þriðji verkhluti er Portrett, í fjórða hluta er farið á dýptina í tveggja punkta fjarvídd sem síðan er nýtt í Lokaverkefni þar sem þættir úr öllum fyrri verkhlutum tvinnast saman.”
Útkoman er sérlega fjölbreytt og forvitnileg sýning þar sem fjölmörg falleg og áhugaverð verk eru til sýnis. Sýningin er sem fyrr segir í Sundhöll Selfoss og stendur yfir frá 16. september til 13. október.
akv / jöz







