UMHVERFIÐ EINS FALLEGT OG ÞAÐ GETUR ORÐIÐ

Í byrjun september mánaðar síðastliðinn gengu þrjátíu og fjórir FSu nemendur og nokkrir kennarar undir stjórn íþróttakennarans og göngugarpsins Ásdísar Bjargar Ingvarsdóttur um hið stórkostlega svæði Landmannalauga. Gengið var um Halldórsgil að Grænahrygg, þaðan yfir í Jökulgil, um Uppgönguhrygg á Skalla og síðan sem leið lá aftur í Landmannalaugar. Um það bil 20 km með rúmlega 1000 metra hækkun. Að sögn Ásdísar gekk ferðin í alla staði mjög vel, veðrið var yndislegt, nemendur stóðu sig með stakri prýði og umhverfið eins fallegt og það getur verið.

ábi / jöz