LEIKSKÓLINN Í FJÖLBRAUT

Heimsókn tæplega þrjátíu skólabarna frá leikskólanum Hulduheimum í hádegishléi vakti sérstaka athygli og gleði starfsmanna FSu. Tengdist hún óbeint væntanlegri fjölmenningarhátíð sem haldin er í húsnæði Fjölbrautaskólans laugardaginn 10. október og hefst klukkan 14.00. Börnin komu færandi hendi því þau settu handarfar sitt úr pappír og litum á regnbogavegginn í anddyri FSu. Helga Gísladóttir skrifstofustjóri FSu tók myndir af heimsókninni og í leiðinni fullyrti einn viðmælandi í anddyri skólans að það væri bæði gott og gaman að skólastigin tali svona saman.

jöz