Kynningarkvöld fyrir foreldra og forsjáraðila nýnema

Þriðjudaginn 1. september kl. 18:00 – 19:30 verður kynningafundur fyrir foreldra og forsjáraðila nýnema í skólanum (nemendur fæddir 2010).

Dagskrá:

  • Ávarp skólameistara á sal skólans.
  • Kynningar frá áfangastjóra, stoðteymi, fulltrúum nemendafélags.
  • Kynning umsjónarkennara (BRAGA kennara) í stofum á annarri hæð.
  • Námsráðgjafar og félagsráðgjafi verða til viðtals á 3. hæð, í stofum 309 og 311.

Boðið verður upp á kaffi og konfekt.

Á heimasíðu skólans má finna gagnlegar upplýsingar um skólastarfið.

Starfsfólk skólans hlakkar til að hitta ykkur á þriðjudaginn!