31.08.2020
Myndlistarnemar FSu sýna reglulega í opinberu sýningarrými utan skólans. Nemendur í framhaldsáföngum fá þá þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum.
Lesa meira
28.08.2020
Unnið var að jafnlaunavottun við FSu á sl. skólaári. Það voru skólameistari, aðstoðarskólameistari og fjármálastjóri sem báru hita og þunga af þeirri vinnu sem reyndist mjög lærdómsrík fyrir alla hlutaðeigandi.
Lesa meira
23.08.2020
Fyrsti kennsludagur á haustönn 2020
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst kl. 8:15. Fyrstu tveir tímarnir verða rafrænir en kl. 10:25 í tvöfalda tímanum, verður kennslan í FSu samkvæmt stundaskrá. Stundaskrá hvers nemanda segir til um námsgreinina og staðsetningu hennar í stofum.
Það sem skiptir öllu máli er að við höfum samskiptin snertingalaus, höldum 1 metra fjarlægð hvort frá öðru og þvoum og sprittum/sótthreinsum hendur reglulega.
Lesa meira
19.08.2020
Skipting skólahúsnæðis vegna sóttvarna
Lesa meira
18.08.2020
Innskráning í INNU er með rafrænum skilríkjum, Íslykli eða skólalykilorði.
Lesa meira
12.08.2020
Rafrænar töflubreytingar haustið 2020, þriðjudaginn 18. ágúst frá klukkan 9 til 12.
Lesa meira
30.05.2020
Tveir starfmenn voru heiðraðir við starfslok á brautskráningu vorannar, þeir Arnlaugur Bergsson og Þórarinn Ingólfsson. Formaður Hollvarðasamtakanna og fyrrum skólameistari, Örlygur Karlsson flutti þeim kveðju við brautskráningu.
Lesa meira
29.05.2020
Ólöf María Stefánsdóttir er dúx FSu á vorönn 2020. 96 nemendur brautskráðust föstudaginn 29. maí, í óhefðbundinni brautskráningu. Vegna samkomutakmarkana var brottfarendum skipt niður í tvo hópa og tvær athafnir fóru fram kl. 13 og kl. 15.
Lesa meira
28.05.2020
Vegna Covid takmarkana geta aðeins 200 manns mætt á brautskráningu frá FSu og verður því boðið uppá beina útsendingu frá athöfninni. Sjá nánari upplýsingar með því að smella á fréttina.
Lesa meira
18.05.2020
Óskað er eftir umsóknum í ungmennaráð heimsmarkmiða Sameinuðu Þjóðanna frá ungmennum á aldrinum 13 til 18 ára frá öllum landshlutum. Valdir verða tíu nýir fulltrúar í ráðið sem munu fræðast og fjalla um heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna frá og með september 2020 og út vorönn 2021. Tveir fulltrúar frá fyrra starfsári munu halda sæti sínu í ráðinu. Ungmennaráðið mun funda sex sinnum á höfuðborgarsvæðinu og þess á milli í gegnum fjarfundabúnað. Þá mun ungmennaráðið jafnframt funda einu sinni með ríkisstjórninni.
Umsóknarfrestur er til og með 24. maí 2020.
Fyrir nánari upplýsingar vinsamlegast hafið samband í gegnum ungmennarad@for.is.
Lesa meira