Mannréttindafræðsla á sérnámsbraut

Á þessari haustönn hafa nemendur á sérnámsbraut fengið mannréttindafræðslu. Nýlega var uppgjör á áfanganum og þá valdi hver og einn nemandi þau réttindi sem honum fannst mikilvægust og skrifaði á miða. Miðana límdu nemendur svo á hendur sem þeir höfðu teiknað eftir sinni eigin og sést afraksturinn á meðfylgjandi mynd. Hendurnar voru að  sjálfsögðu í öllum litum í stíl við fjölbreytileikann í lífinu.