Fréttir
KÁTÍNAN OG FÁRIÐ Í HVERSDEGINUM
04.03.2024
KÁTIR DAGAR og FLÓAFÁR voru haldnir í síðustu viku febrúar í FSu og fyrstu viku marsmánaðar og tókust sérlega vel að þessu sinni. Skipulag var gott og sköpun enn betri enda mikið lagt í það af starfsfólki skólans og nemendum. Þátttaka var til sóma og mikið líf í gula húsinu við Tryggvagötu frá miðvikudegi til föstudags í síðustu viku.
Lesa meira
Blómaskreytingar og brúðkaup
27.02.2024
Nú í apríl kemur sænski kennarinn og blómahönnuðurinn Heidi Mikkonen-Jacobsson til landsins og verður með spennandi námskeið fyrir blómaskreyta á Garðyrkjuskólanum að Reykjum. Heidi hefur víðtæka reynslu sem blómaskreytir og leggur mikla áherslu á að vinna út frá umhverfisvænum sjónarmiðum en um leið að hugsa djarflega við alla sköpun.
Heidi verður með námskeið fyrir nemendur á blómaskreytingabraut en síðan verður einnig í boði námskeið fyrir fólk sem vinnur við blómaskreytingar dagana 12.-13. apríl.
Styrkur fékkst úr menntaáætlun Erasmus+ til að bjóða Heidi til landsins. Það ríkir mikil tilhlökkun meðal nemenda að fá að læra ný vinnubrögð. Ekki eru viðbrögð blómaskreyta síðri en frá þeim eru strax farnar að berast skráningar.
Lesa meira
KÁTIR DAGAR OG FLÓAFÁR FRAMUNDAN
26.02.2024
Segja má að viðburðirnir KÁTIR DAGAR og FLÓAFÁR séu vorhátíð FSu sem tengja má við hækkandi sól og karnívalstemningu eða blót í lok þorra eða bros í byrjun góu. Á Kátum dögum er boðið upp á ýmis og fjölbreytileg námskeið en Flóafár er innbyrðis keppni nemenda í öllum þeim námsgreinum sem FSu býður upp á – og um leið er Flóafár skemmtun þar sem sköpunin og fjölbreytileikinn ræður ríkjum.
Lesa meira
MYNDLISTARSÝNINGIN MAÐUR OG EFNI
22.02.2024
Myndlistarnemar FSu halda áfram uppteknum hætti að setja upp sýningu í opinberu sýningarrými utan skólans. Það eru nemendur í framhaldsáföngum sem fá þjálfun í uppsetningu og kynningu á eigin verkum. Að þessu sinni eru það nemendur í áfanganum Maður og efni sem sýna í Listagjánni á Bókasafni Árborgar 23. feb. – 15. mars. Verkin eru unnin á haustönn 2023.
Lesa meira
HEIÐURSMAÐUR Í HEIMSÓKN
17.02.2024
Einhvern tímann sagði einhver að óvæntar heimsóknir væru skemmtilegastar. Það sannaðist mánudaginn 12. febrúar síðastliðinn þegar Heimir Pálsson fyrsti skólameistari FSu kom í stutta heimsókn í skólann ásamt Örlygi Karlssyni sem sjálfur gegndi stöðu skólameistara og aðstoðarskólameistara um langan tíma. Heimir hafði þá fyrr um daginn haldið erindi í lestrarfélagi eldri borgara á Selfossi þar sem fjallað er um Íslendingasögur.
Lesa meira
HÁR UPPLYFTING Í SKAMMDEGINU
10.02.2024
Nemendur í HÁRSNYRTI IÐN í FSu undir stjórn mentorsins Elínborgar Örnu Árnadóttur bjóða með reglubundnum hætti starfsfólki og nemendum skólans í hársnyrtingu, hárþvott og höfuðnudd. Óhætt er að segja að þetta lífgi upp á daglegt starf margra og auki fegurð þeirra. Nú var boðið upp á þessa þjónustu – sem jafnframt er kennsla – föstudaginn 9. febrúar.
Lesa meira
NÝSVEINAHÁTÍÐ Í HÖFUÐSTAÐNUM
06.02.2024
Lárus Gestsson fagstjóri húsasmíðagreina í FSu „skrapp í höfuðstaðinn” eins og hann orðar það í færslu á samfélagsmiðli til að fylgja eftir nemanda skólans Guðmundi Þór Gíslasyni rafvirkja sem tók þar við verðlaunum. Meistari Guðmundar var Guðjón Guðmundsson frá Árvirkjanum á Selfossi.
Lesa meira
Garðyrkjunámskeið fyrir almenning vor 2024
23.01.2024
Við Garðyrkjuskólann hefur löngum starfað öflug endurmenntunardeild sem boðið hefur upp á námskeið bæði fyrir fagfólk í garðyrkju og allan almenning.
Þetta starf heldur áfram með sama hætti þó yfirstjórn skólans hafi flutt yfir til Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Alltaf fjölgar þeim sem hafa áhuga á að rækta í kringum sig, hvort sem það eru pottaplöntur inni í hýbýlum, matjurtir á svölunum, ávextir í gróðurhúsinu eða skógrækt í sumarbústaðalandinu. Við Garðyrkjuskólann starfa reynslumiklir sérfræðingar sem þekkja íslenskt ræktunarumhverfi í þaula og eru tilbúnir að miðla þekkingu sinni.
Námskeiðin á þessari önn eru kynnt á síðu Endurmenntunar Græna geirans. Þar má finna nánari lýsingu á því sem verður í boði. https://www.fsu.is/is/namid/gardyrkjuskolinn-reykjum/gardyrkjuskolinn-namskeid
Lesa meira
NÚ ER AÐ SJÁ HVERNIG ÞEIR STANDA SIG
12.01.2024
Nú þegar Evrópumót karlalandsliða í handbolta er hafið og spennan að magnast er ekki úr vegi að draga fram þá lykilleikmenn liðsins sem stundað hafa nám við FSu. Það er líka bæði fróðlegt og gaman og fullyrða má að enginn framhaldsskóli landsins geti tengt sig við svo marga hæfileikamenn í sama liðinu.
Lesa meira
GETTU BETUR BYRJAR AFTUR
07.01.2024
Þegar við sleppum hendinni af jólahátíðinni og fæðingu frelsarans - kveðjum Grýlu, Leppalúða og jólasveinana þrettán - hringir GETTU BETUR þátttaka FSu inn. Það er alltaf fagnaðarefni og ákveðinn vorboði. Frammistaða nemenda í fyrra er mjög eftirminnileg því þá endaði skólinn í 2. sæti eftir jafna keppni við MR í úrslitum 34 - 24. Þá skipuðu skólaliðið Ásrún Aldís Hreinsdóttir, Elín Karlsdóttir og Heimir Árni Erlendsson. Nú hefur Ásrún útskrifast og kvatt skólann í bili og Valgeir Gestur Eysteinsson er kominn í hennar stað.
Lesa meira