Hársnyrtiiðn - HÁR (4 annir af 6)
Brautin tók gildi á haustönn 2026.
Grunnnám í hársnyrtiiðn er fyrstu 4 annir heildarnáms til hársnyrtis eða 90 einingar. Heildarnám í hársnyrtiiðn er um 220 einingar og eru námslok á 3. hæfniþrepi. Námið er í boði við Tækniskólann og Verkmenntaskólann á Akureyri. Að lokinni starfsþjálfun þreyta nemendur sveinspróf sem veitir réttindi til að starfa í iðngreininni og síðar inngöngu í nám til iðnmeistara í hársnyrtiiðn.
Hársnyrtir klippir, litar, setur permanent í hár og blæs og útfærir hár allra kynja – allt óháð hárlengd, hárgerð og höfuðlagi. Hann velur vörur og áhöld og útfærir þjónustu á faglegum forsendum en miðar einnig við þarfir og óskir viðskiptavina.
Á hverri önn velja nemendur kjarnagrein; ensku, íslensku eða stærðfræði, og raðast í áfanga eftir hæfnieinkunn úr grunnskóla. Röðun í byrjunaráfanga tekur mið af hæfnieinkunn úr grunnskóla og til að hefja nám á öðru hæfniþrepi þarf einkunn B eða hærra. Nánari leiðbeiningar um inntökuskilyrði og röðun í kjarnaáfanga.
| Faggreinar hársnyrtiiðnar | ||||
| Námsgrein | 1. önn | 2. önn | 3. önn | 4. önn |
| hármótun | HMÓT1HG05A | HMÓT2HG05B | HMÓT2HG05C | HMÓT3HG05D |
| hársnyrting | HSNY1HG05A | HSNY2HG05B | HSNY2HG06C | HSNY2HG05D |
| permanent | HPEM1HG05A | HPEM2HG02B | HPEM3HG05C | |
| hármótun rakstur og skeggklipping | HRSS2HG05A | |||
| iðnfræði háriðna | IÐNF1HG05A | IÐNF2HG05B | IÐNF2HG05C | IÐNF2HG05D |
| iðnteikning háriðna | ITEI1HG05A | ITEI2HG05B | ||
| starfskynning á vinnustað | HSTA1HG05A | |||
| skyndihjálp | SKYN2HJ01** | |||
| Faggreinar hársnyrtiiðnar - nemendur velja annan hvorn áfangann | ||||
| starfskynning á vinnustað | HSTA2HG05B | |||
| verkstæði starfsgreina | VSTÆ2HG05A | |||
| Almennar greinar | ||||
| enska - 5 ein. | ENSK2OL05 |
|||
| íslenska - 5 ein. | ÍSLE2OS05 | |||
| lífsleikni* | ERGÓ1AA05 | ERGÓ1BB05 | ||
| stærðfræði - 5 ein. | STÆR2RU05 | |||
| íþróttir | ÍÞRÓ1ÞH03 | ÍÞRÓ2ÞL03 |
ÍÞRÓ2__02 | |
| skólabragur | BRAG1SA01 | BRAG1SB01 | ||
| 34 einingar | 35 einingar | 35 einingar |
30 einingar | |
5 einingar eru í frjálsu vali.
*lífsleikni - ERGÓ-áfangarnir koma í stað FÉLA1SA05 og UMHV1SU05
**SKYN2HJ01 er námskeið sem boðið er upp á í skólanum. Nemendur þurfa að ljúka a.m.k. 12 klukkustunda námskeiði í skyndihjálp.
Eldri braut má nálgast hér - Brautin var í gildi til og með vorönn 2026.







