Valið og lokavaldagur fyrir haustönn 2021

Neðangreint á ekki við um nemendur á sérnámsbraut (SB). Þeir skrá val sitt á valblöð hjá umsjónarkennara sínum sem sér svo um að skrá það í Innu.

Búið er að opna á val í Innu fyrir haustönn 2021. Miðvikudagurinn 10. mars, er lokavaldagur. Þann dag verða umsjónar- og bragakennarar til aðstoðar á milli klukkan 14:35 og 15:30 og um að gera að hafa samband við þá ef spurningar vakna.

Öll gögn sem varða valið má finna á heimasíðu skólans undir Námið - Nám í FSu. Þar eru m.a.:

Val í Innu/leiðbeiningar

https://www.fsu.is/static/files/pdf/afangastjori/H18/ad-skra-val-i-nyju-innu.pdf

Áfangar í boði á haustönn 2021

https://www.fsu.is/static/files/pdf/afangastjori/H21/afangar-i-bodi-h21.pdf

Leiðbeiningar vegna vals í kjarnagreinum

https://www.fsu.is/static/files/pdf/afangastjori/V21/0-leidbeiningar-vid-val-dans_ensk_isle_staer-fyrir-v21.pdf

Áætlun um áfangaframboð

https://www.fsu.is/static/files/pdf/afangastjori/H21/aaetlun-um-afangaframbod.pdf

 

Á heimasíðu skólans er hnappurinn Áfangamessa en þar er gott kynningarefni. https://www.fsu.is/is

 

Mikilvægt er að þið vistið valið ykkar áður en þið staðfestið það í lokin. Óstaðfestu vali verður eytt úr Innu.

Þeir nemendur sem ekki ætla að vera í skólanum á næstu önn þurfa að láta umsjónarkennara sína vita af því.

 

Útskriftarefni

Þeim sem hyggjast útskrifast næsta haust er bent á að skrá sig í útskriftarhópinn með því að velja áfangann ÚTSK1ÚT00. Útskriftarefnum sem eiga í vanda með valið er bent á að tala við áfangastjóra eða senda tölvupóst á hann. Þið eruð beðin um að sýna þolinmæði ef mikið berst af pósti.

 

Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga við val.

- Fullt nám er ca. 30-34 einingar.  Nemendur í fullu námi ættu að velja 6-7 áfanga í aðalval.

- Nemendur þurfa að velja 3-5 áfanga í varaval. Of lítið varaval getur orðið til þess að nemandi fær of fáa áfanga í töflu.

- Val nemenda verður að vera staðfest. Staðfest val er auðkennt með “V” í miðstafnum (SAGA2YA05 SV1) aftan við áfangaheitið, en óstaðfest val með “Á”.

Nemendur sem þurfa aðstoð við val skulu leita til umsjónarkennara/bragakennara.

Einnig geta nemendur fengið aðstoð með því að senda póst á náms- og starfsráðgjafa.

 

Áfangastjóri