Vísnakvöld Kórs FSu

Vísnakvöld Kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands verður haldið á fimmtudaginn nk, þann 10. mars, kl. 20:00 í sal skólans.

Þar verða m.a. atriði frá nemendum og starfsfólki skólans, nemendur Tónlistarskóla Árnesinga koma fram sem og nemendur Tónsmiðjunnar. 

Kaffi og kökur verða á boðstólum í hléi. 

Aðgangseyrir er 1.000 kr.

Við vonumst til að sjá sem flesta,

Stjórn Kórs FSu.