Vífilsfell loks sigrað

Síðasta fjallganga útivistaráfangans var farin laugardaginn 24. apríl. Aftur var stefnt á Vífilsfell en hópurinn hafði áður reynt við fjallið en þurft að játa sig sigraðan fyrir veðri og vindum.  Nú var veðrið gott og ekki kom annað til greina en að komast á toppinn. Eftir u.þ.b. klukkutíma puð var toppnum náð og laun erfiðisins fengin með ágætis útsýni þrátt fyrir mistur í lofti. Eftir gott stopp og notalegheit á toppnum var gengið niður.  Myndir frá göngunni má finna á heimasíðu skólans.