Viðurkenning og fjárstyrkur

Fjölbrautaskóli Suðurlands hlaut viðurkenningu og fjárstyrk frá verðlauna- og styrktarsjóði Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi um liðna helgi. Fjárstyrkurinn nemur 500 þúsund krónum og er veittur fyrir framúrskarandi og nýstárlegt framtak á sviði mennta- og samfélagsverkefna, til menntunar vistmanna á Litla Hrauni og Sogni.