Viðburðarík vika framundan

Þessi vika verður viðburðarík í FSu, en á miðvikudag hefjast Kátir dagar þar sem hefðbundið skólastarf er brotið upp með allskyns viðburðum og skemmtan. Hátíðinni lýkur svo með Flóafári á föstudaginn, þar sem nemendur keppa í liðum við lausnir þrauta sem starfsfólks skólans býr til. Þeir sem vilja rifja upp minningar eða hita sig upp fyrir Flóafár geta skoðað myndir frá Flóafári 2015 á fésbókarsíðu skólans. Myndirnar tók Örn Óskarsson.