Verðlaun í Þýskuþraut

Á sumardaginn fyrsta tók Jóhann Knútur Karlsson við verðlaunum fyrir frammistöðu sína í Þýskuþraut - landskeppni framhaldsskólanema í þýsku. Verðlaun voru veitt fyrir 20 efstu sætin og hafnaði Jóhann Knútur í því sextánda. Athöfnin fór fram í bústað þýska sendiherrans í Reykjavík.