Verðlaun í Músíktilraunum

Úrslitakvöld Músíktilrauna fór fram laugardaginn 27. mars. Okkar menn, The Assassin of a Beautiful Brunette, voru valdir Hljómsveit fólksins í símakosningu og hlutu þriðja sætið í vali dómnefndar. Skúli trommari var auk þess valinn besti trommuleikari keppninnar þetta árið. Þá má geta þess að Arnar Eggert Thoroddsen dómnefndarmaður og tónlistarfræðingur Morgunblaðsins taldi hljómsveitina „...líklega best spilandi band tilraunanna“ (Mbl. 29. mars).