Vel sóttir jólatónleikar
			
					20.12.2010			
	
	Jólatónleikar Kórs FSu voru haldnir á 4. sunnudegi í aðventu. Þar flutti kórinn jólatónlist úr ýmsum áttum og frá ólíkum tímabilum tónlistarsögunnar. Einsöngvari með kórnum var Hlín Pétursdóttir og á trompet lék Ása Berglind Hjálmarsdóttir. Auk þeirra komu fjölmargir einsöngvarar og hljóðfæraleikarar úr röðum kórfélaga fram á tónleikunum. Kynnir var Anna Árnadóttir. Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands og stjórnandi, Stefán Þorleifsson, þakka tónleikagestum notalega samverustund.
				






