Vel heppnuð málstofa

Nemendur á sjúkraliðabraut héldu nýverið málstofu þar sem þeir kynntu verkefni sín. Um 40 manns komu og hlýddu á verkefnin sem voru 16 talsins og fjölluðu um verkefni tengd heilbrigði og sjúkdómum. Meðal annars voru flutt  erindi um Alzheimer, geðklofa, þunglyndi barna og Parkinson. Boðið var upp á kaffi og kökur.