Vel heppnaðir tónleikar

Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands hélt afar vel heppnaða tónleika sunnudaginn 4. maí í  Selfosskirkju ásamt kór Menntaskólans að Laugarvatni. Tónleikarnir voru fjölbreyttir og skemmtilegir og stóðu nemendur sig mjög vel við tónlistarflutninginn og framkomu alla  og voru sjálfum sér og skólunum til mikils sóma. Húsfyllir var á tónleikunum og tónleikagestir ánægðir  og hrósuðu okkar ungu listamönnum í hástert. Kór Fsu þakkar ML kórnum fyrir gott samstarf  og þakkar einnig  öllum tónleikagestum fyrir komuna. Meðfylgjandi mynd var tekin á tónleikunum