Vel heppnaðir góðgerðardagar

Liðin vika var svokölluð góðgerðarvika í skólanum, en þá stóð nemendafélag skólans fyrir alls konar uppákomum sem allar höfðu það að markmiði að safna peningum til góðgerða. Málefnið sem var ákveðið að styrkja að þessu sinni voru stríðshrjáð börn í Sýrlandi í gegnum Unicef. Skólinn var skreyttur hátt og lágt með blöðrum, boðið var upp á vöfflur, grínmyndbönd, pizzur seldar sem og candy floss. Happdrættismiðar voru til sölu að ógleymdum þeim möguleika að skora á nemendur eða kennara og leggja fé undir. Vikunni var svo lokað með uppgjörshátíð á föstudag þar sem nemendur og kennarar öttu kappi í óhefðbundnum boltaíþróttum, framkvæmd áskorana kynnt, en þar var fremst meðal jafningja Kolbrún Dagmar Stefánsdóttir, en hún lét raka sig sköllótta fyrir málstaðinn og söfnuðust 250.000 krónur út á þessa einu áskorun.

godgerdardEkki liggur fyrir í dag hversu miklu tókst að safna í heildina, en söfnunarféð verður afhent fulltrúum Unicef með viðhöfn fljótlega.

Myndirnar sýna Kolbrúnu Dagmar að rakstri loknum og hóp nemenda sem tóku áskorunum um alls konar aðgerðir, koma í kjól í skólann, hár og húðlitun, fótarakstur, litun og plokkun svo eitthvað sé nefnt.