Vel heppnað Háskólatorg

Miðvikudaginn 16. mars stóð náms- og starfsráðgjöf FSu fyrir Háskólatorgi í miðrýminu í Odda. Þar kynntu allir háskólar á Íslandi, átta talsins, námsframboð sitt fyrir nemendum skólans. Á sama tíma var Europass-ferilskráin kynnt. Kynningar þessar voru ágætlega sóttar og vel að þeim staðið á allan hátt.