VEITINGUM VAR GERÐ GÓÐ SKIL

Mánudaginn 4. apríl síðastliðinn héldu nemendur í áfanganum HOME / heimilishald - boð fyrir fjölskyldur sínar og starfsfólk FSu. Nemendur kynntu innihald áfangans og æfðu sig í að vera gestgjafar. Auk þess útbjuggu þeir gómsætar og glæsilegar veitingar - ýmist heima hjá sér eða í samstarfi við Jórunni Birgisdóttur kennara í matvælagreinum og Bjarna Hauk Guðnason matreiðslumanns skólans -  í eldamennsku og smáréttaáföngum. „Það er ómetanlegt að njóta slíks samstarf” segir Þorbjörg Vilhjálmsdóttir - einn af kennurm starfsbrautarinnar.

Mæting var fín. Veitingum gerð góð skil og mikil gleði ríkjandi.

 

 jöz / þor