Valið og lokavaldagur fyrir vorönn 2023

Neðangreint á ekki við um nemendur á sérnámsbraut (SB). Þeir skrá val sitt á valblöð hjá umsjónarkennara sínum sem sér svo um að skrá það í Innu.

Búið er að opna á val í Innu fyrir vorönn 2023. Fimmtudagurinn 20. október er lokavaldagur. Þann dag verða umsjónar- og bragakennarar til aðstoðar á milli klukkan 13:35 og 15:30. Hafið samband við þá ef spurningar vakna. Náms- og starfsráðgjafar verða einnig til viðtals.

Hver er umsjónarkennari minn? Þeir nemendur sem ekki eru í áfanganum BRAG1SA01 finna umsjónarkennara sinn í Innu með því að smella á örina efst til hægri og smella síðan á „Ég“

Öll gögn sem varða valið má finna á heimasíðu skólans undir Námið - Nám í FSu. Þar er m.a.:

Val í Innu/leiðbeiningar

Áfangar í boði á vorönn 2023

Leiðbeiningar vegna vals í kjarnagreinum

Áætlun um áfangaframboð

 

Mikilvægt er að þið staðfestið valið ykkar í lokin. Gott er að fara inn í Námsferil-Annir til að ganga úr skugga um að staðfestingin hafi gengið eftir. Þar er staðfest val auðkennt með “V” í miðstafnum (SAGA2YA05 SV1) aftan við áfangaheitið, en óstaðfest val með “Á”.

Óstaðfestu vali verður eytt úr Innu.

Þeir nemendur sem ekki ætla að vera í skólanum á næstu önn þurfa að láta umsjónarkennara sína vita af því.

Útskriftarefni

Þeim sem hyggjast útskrifast næsta vor er bent á að skrá sig í útskriftarhópinn með því að velja áfangann ÚTSK1ÚT00. Útskriftarefnum sem eiga í vanda með valið er bent á að tala við áfangastjóra eða senda tölvupóst á hann (bjorgvin@fsu.is)

 Þið eruð beðin um að sýna þolinmæði ef mikið berst af pósti.

Mikilvægt er að hafa eftirfarandi í huga við val.

- Fullt nám er ca. 30-34 einingar.  Nemendur í fullu námi ættu að velja 6-7 áfanga í aðalval.

- Nemendur þurfa að velja 3-5 áfanga í varaval. Of lítið varaval getur orðið til þess að nemandi fær of fáa áfanga í töflu.

Nemendur sem þurfa aðstoð við val skulu leita til umsjónar- eða bragakennara. Einnig geta nemendur fengið aðstoð hjá náms- og starfsráðgjöfum skólans, hér er hægt að bóka tíma rafrænt

Áfangastjóri