Upphaf haustannar

Undirbúningur haustannar gengur vel, góður andi er í húsinu og tilhlökkun í loftinu.  Hér að neðan eru upplýsingar um upphaf haustannar.

Nýnemadagur:

Nýnemar eru boðin velkomin í skólann þriðjudaginn 18. ágúst kl. 8:30.

Dagurinn hefst kl. 8:30 með því að skólameistari býður nýnema velkomna í hátíðarsal skólans. Að því loknu er fjölbreytt dagskrá fram yfir hádegi. Nemendur hitta BRAGA-kennara sína, fara milli stöðva til að kynnast skólastarfinu og dagurinn endar á gleði sem nemendafélag FSu sér um.

Stundatöflur og fyrsti kennsludagur:

Stundatöflur verða aðgengilegar í INNU kl. 9 þriðjudaginn 18. ágúst. Nemendur þurfa rafræn skilríki eða auðkennisappið til að opna INNU. Samdægurs verða rafrænar töflubreytingar milli 11 og 15. 

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 19. ágúst

Dagatal skólaársins er aðgengilegt hér.

Myndin til hliðar er frá Flóafári vorið 2026.