Undirbúningur vegna haustannar hafinn

Skrifstofa skólans opnaði 4. ágúst og er unnið að skipulagningu haustannar.
Nýnemadagur verður 18. ágúst kl. 8:30.
Töflubreytingar verða rafrænar að þessu sinni, frekari upplýsingar um þær koma þegar nær dregur.
Þeir nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjald eru hvattir til að gera það því annars er litið svo á að þeir ætli ekki að stunda nám á haustönn 2015.
Strætó gengur samkvæmt tímatöflu út sumarið, en þegar ný vetrardagskrá gengur í gildi þá tekur hún mið af nýju stokkakerfi sem tekið verður upp við upphaf annar.