Undirbúningur haustannar hafinn

Skrifstofa skólans opnaði 3. ágúst og er unnið að skipulagningu haustannar.

Nýnemadagur verður 17. ágúst kl. 8:30.

Töflubreytingar verða sama dag kl.13, nánari útskýringar á fyrirkomulagi töflubreytinga verða kynntar í upphafi næstu viku.

Kennsla hefst svo samkvæmt stundarskrá fimmtudaginn 18. ágúst.

Þeir nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjald eru hvattir til að gera það því annars er litið svo á að þeir ætli ekki að stunda nám á haustönn 2016.