Töfrandi stjórn

Starfsmannafélag FSu starfar af krafti allan veturinn við að búa til viðburði  fyrir starfsfólk skólans og slá á létta strengi í daglegu starfi. Ný stjórn tók við í haust og kallast hún Töfrastjórnin.  Hana skipa Íris Þórðardóttir, Sólrún Stefánsdóttir, Grímur Lúðvíksson, Anna Árnadóttir og Kristjana Hrund Bárðardóttir. Nú þegar hefur verið birt dagskrá fyrir veturinn með skemmtilegum viðburðum. Að auki afhenti töfrastjórnin nýlega gjafir til þeirra sem átt höfðu stórafmæli eða gift sig yfir sumartímann.  Á myndinni má sjá stjórnina ásamt þeim sem tóku á móti gjöfum .