Tískusýning nemenda

Nemendur í THL103 og 203 Fatahönnun, ásamt nokkrum nemendum úr THL173 Fatasaum, stigu á stokk á jólakvöldvöku Nemendafélags FSu og sýndu eigin hönnun. Afraksturinn var glæsilegur eins og sést á myndinni og skemmtilegt fyrir nemendur að fá tækifæri til að koma hönnun sinni svona á framfæri. Myndina tók Hermann Snorri.