Tilkynning vegna yfirvofandi verkfalls

Vegna yfirvofandi verkfalls hjá strætóbílstjórum fimmtudaginn 30. apríl næstkomandi eru nemendur og forráðamenn beðnir um að fylgjast vel með fréttum um kjaraviðræður. Ef af verkfalli verður, þá verður enginn skólaakstur frá 12 á hádegi til miðnættis, fimmtudaginn 30. apríl og þurfa nemendur þá að gera eigin ráðstafanir vegna heimferðar. Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Strætó.