Þriðja sæti í Söngkeppninni

Daníel Haukur Arnarsson náði þriðja sæti í Söngkeppni framhaldsskólanna sem fram fór á Akureyri á laugardagskvöldið. Sigurvegari varð Kristín Þóra Jóhannsdóttir úr Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Halldór Smárason og Daði Már Guðmundsson úr Menntaskólanum á Ísafirði urðu í öðru sæti. Þetta er glæsilegur árangur hjá Daníel Hauki, ekki síst þegar haft er í huga að hann hljóp í skarðið fyrir Guðmund Þórarinsson með litlum fyrirvara.