Þórunn Hafdís vann söngkeppnina

Söngkeppni NFSu fór fram í Iðu í gærkvöldi. Sigurvegarinn í ár er Þórunn Hafdís Stefánsdóttir en hún söng lagið „Ég veit að þú kemur“ með hljómsveitinni Trúbrot. Bryndís Embla Einarsdóttir varð í öðru sæti og Arnar Logi Hafsteinsson í því þriðja. Einnig voru veitt verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið en þau hlaut Heimir Karl Rafnsson.

Tólf söngvarar tóku þátt og stóðu sig öll með mikilli prýði. Það er sigur fyrir hvern og einn keppanda að hafa kjark til að taka þátt í svona keppni og greinilegt að innan skólans eru margir hæfileikaríkir söngvarar.

Keppnin var hin glæsilegasta og siguratriðin fóru heim klyfjuð verðlaunum. Hljómsveitin Koppafeiti spilaði undir hjá öllum keppendum, líkt og í fyrra. Þétt var setið í Iðu og stemningin frábær. Kvöldið hófst á stuttmynd þar sem hver leiksigurinn á fætur öðrum leit dagsins ljós. Manúela Maggý flutti sigurlagið í fyrra og hljómsveitin Bíddu flutti nokkur lög meðan dómarar réðu ráðum sínum. Það var kvikmyndaþema í ár og báru skreytingar þess glöggt merki.

Þórunn Hafdís verður fulltrúi FSu í söngkeppni framhaldsskólanna á næsta ári.

Fleiri myndir og myndskeið má sjá á instagram síðu nemendafélagsins.