Sýningarpartý

Síðasta kennsludag fyrir dimmisjón, var haldið svonefnt „sýningar-partý“ í áfanganum FAT1S3, fatasaum, á Starfsbraut. Það skemmtilegasta í þetta skiptið var að strákarnir komu stelpunum á óvart með að mæta í „Fatið“ með uppskeruhluti sína úr „Trénu“, trésmíði.

Það er alltaf gaman að gleðjast saman yfir því sem náðst hefur á önninni, ekki síst núna, að lokinni óhefðbundinni önn með mörgum „verk-um og hléum og fimmtudögum“. Vorkveðja frá Textíldeildinni.