SÝNILEIKI KYNJAFRÆÐINNAR

Kynjafræði er kennd í FSu áfanganum KYNJ2GR05 og heldur Eva Dögg Jafetsdóttir utan um nám og kennslu. Þar kynnast nemendur kenningum og hugtökum tengdum kynjafræði, jafnrétti, lýðræði, mannréttindum og sjálfsmynd. Farið er yfir sögu jafnréttisbaráttunnar og fjallað um birtingarmyndir og staðalmyndir kynjanna í fortíð og nútíð og áhersla lögð á mikilvægi jafnræðis meðal borgara í lýðræðissamfélögum nútímans.

Í eftirfarandi myndaröð má líta á afrakstur nemenda í veggspjaldagerð í áfanganum þar sem hanna átti veggspjald um hinsegin málefni og fengu nemendur frjálsar hendur við það. Markmiðið var að vekja athygli og vitund og stuðla að auknum sýnileika. Hluti verkefnisins var síðan að hengja veggspjöldin upp í skólanum á stöðum sem þau völdu sjálf – og gera kynjafræðina og allt sem hún stendur fyrir sýnilega.

edj / jöz