Syngjandi skjaldbökur

Skólinn fylltist af syngjandi glöðum skjaldbökum síðastliðinn fimmtudag. Þar voru á ferð dimmitantar, nemendur sem stefna á að ljúka námi á vorönn. Skjaldbökurnar stigu dans og sungu fyrir nemendur og starfsfólk. Því næst gæddu þeir sér á kjötsúpu með starfsfólki og héldu svo út í óvissuferð. Nú er próflestur tekinn við, en um 113 nemendur hyggjast brautskrást úr námi við skólann. Brautskráning vorannar fer fram föstudaginn 22. maí og hefst kl. 14.