Sumardagurinn fyrsti á Garðyrkjuskólanum

Að vanda verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta kl. 10-17.
Í aðalbyggingu skólans er allt í blóma og þar er hægt að líta við á markaðstorginu og kaupa sér ferskt grænmeti, nýupptekið hnúðkál, hraustlegar jarðarberjaplöntur, sultur úr ýmsu hráefni frá skólanum (t.d. appelsínumarmelaði úr beiskjuappelsínum í bananahúsinu) og margt fleira. Glæsileg túlípanasýning verður í garðskála skólahússins og er hún í boði gróðrarstöðvarinnar Dalsgarðs í Mosfellsdal.
Í skólastofum er kynning á námi við skólann, Garðyrkjufélag Íslands verður á staðnum og ýmis fyrirtæki kynna starfsemi sína og afurðir. Í matsal skólans er tilvalið að staldra við og kaupa kaffi og vöfflur með rjóma. Í verknámshúsi skrúðgarðyrkjunnar er hægt að virða fyrir sér vinnu nemenda í vetur og njóta veðurblíðunnar innanhúss, þar verða pylsur og ís á boðstólum og kynningar á ýmsum vörum. Einnig verður kynning á skrúðgarðyrkju og hægt að spreyta sig á hellulögn. Pottaplöntusafn skólans er fjölbreytt og ómissandi fyrir áhugafólk um pottaplöntur að skoða dýrðina. Í tilraunahúsinu eru hefðbundnar gróðurhúsajurtir, gúrkur, tómatar, paprika og fleira áhugavert. Rúsínan í pylsuendanum er svo bananahúsið þar sem bananaplöntur, kaffi- og kakórunnar, appelsínur, fíkjur, granatepli og ótal tegundir skrautjurta gleðja augað. Þar er einnig mjög spennandi verkefni fyrir yngri kynslóðirnar: Að leita að apanum.
Klukkan 13:30 hefst hátíðardagskrá í garðskálanum og stendur hún yfir í tæpa klukkustund. Þar verða afhent garðyrkjuverðlaun ársins í þremur flokkum, hvatningarverðlaun garðyrkjunnar, verknámsstaður ársins og heiðursverðlaun garðyrkjunnar. Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar verða einnig afhent og er gaman að segja frá því að Hveragerðisbær fagnar einmitt 80 ára afmæli sínu í ár. Karlakór Hveragerðis tekur lagið, Einar Clausen söngvari verður með einsöng og hljómsveit sem skipuð er nemendum úr skólanum mun einnig stíga á stokk.
Á útisvæðum skólans verður boðið upp á ketilkaffi að hætti skógarmanna.
Skólinn hefur um áratugaskeið fagnað sumrinu með opnu húsi á sumardaginn fyrsta og er þetta ómissandi liður í sumarkomunni hjá fjölda fólks. Það má treysta því að það er alltaf gott verður í gróðurhúsunum.
Verið hjartanlega velkomin!